136. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2009.

stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsrh.

[21:40]
Horfa

Björn Bjarnason (S):

Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Um leið og ég óska nýrri ríkisstjórn og einstökum ráðherrum hennar velfarnaðar í störfum lýsi ég undrun á aðdraganda og aðferð við myndun hennar.

Hér á landi gildir þingræðisregla og hefur gert allt frá því að íslenskur ráðherra kom til sögunnar í Stjórnarráði Íslands fyrir 105 árum. Í reglunni felst að við myndun ríkisstjórnar skuli leita allra leiða til að í landinu sé meirihlutastjórn. Framkvæmd reglunnar hefur til þessa byggst á því að forseti Íslands veiti umboð til stjórnarmyndunar í samræmi við hana og að ekki sé veitt umboð til að mynda minnihlutastjórn fyrr en kannað hafi verið til þrautar að ekki sé unnt að stofna til stjórnar með meiri hluta þingmanna á bak við sig.

Þegar Geir H. Haarde baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt mánudaginn 26. janúar lagði hann til við Ólaf Ragnar Grímsson að mynduð yrði þjóðstjórn. Tillagan var að engu höfð og þess í stað tilkynnt á Bessastöðum daginn eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fengi umboð til að mynda minnihlutastjórn í samvinnu við Steingrím J. Sigfússon enda hefði Framsóknarflokkurinn lofað að verja slíka stjórn vantrausti og Frjálslyndir gert sig líklega til einhvers konar stuðnings. Þá skyldu tveir utanþingsmenn sitja í stjórninni. Í forsetaboðskap var látið að því liggja að gengi þetta eftir yrði hér til ígildi þjóðstjórnar sem er fráleitt.

Við hlýðum nú í kvöld á skýrslu forsætisráðherra í minnihlutastjórn. Þá skal þess minnst að óvissa ríkir um stuðning meiri hluta þingmanna við allt sem boðað er í þessari skýrslu. Hún er því lítið annað en orð á blaði.

Góðir áheyrendur. Þegar litið er á málefnalista nýrrar ríkisstjórnar sést raunar að þar er það eitt haldfast sem ákveðið hafði verið í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar. Nú er gripið til þess ráðs að færa frumvörp í annan búning eins og t.d. frumvarp um skuldaaðlögun einstaklinga og heimila sem samið var í dómsmálaráðherratíð minni og ég hef nú flutt hér á þingi ásamt öðrum sjálfstæðismönnum. Breytingar hinnar nýju stjórnar á því máli eru þess eðlis að við venjulegar aðstæður hefðu þær komið fram við meðferð málsins í þingnefnd.

Hin rétta mynd af tilgangi stjórnarsamstarfs Samfylkingar og Vinstri grænna birtist hér í þingsalnum í dag þegar andstæðingar Sjálfstæðisflokksins sameinuðust um að ýta Sturlu Böðvarssyni úr forsetastóli. Þeir kepptust við að segja að það væri ekki vegna starfa Sturlu heldur vegna þess að hann væri sjálfstæðismaður. Og framsóknarmönnum þótti sér sæma að leggja þessum gjörningi lið. Að minnihlutastjórn hefji störf með flokkspólitíska heift og hefnigirni að leiðarljósi lofar ekki góðu.

Við þingmenn lútum atkvæðavaldi hér á hinu háa Alþingi. Hinu ber að mótmæla að beitt sé geðþóttavaldi gagnvart einstökum embættismönnum ríkisins. Á mörgu getur maður vissulega átt von á vettvangi stjórnmálanna en að sjá formann BSRB, þótt í leyfi sé, sitja í ríkisstjórn sem gerir aðför að rétti embættismanna til starfa — við því gat enginn skynsamur maður búist. Eftir fyrsta fund nýrrar ríkisstjórnar grípur hæstv. forsætisráðherra til þess óvenjulega ráðs að afhenda fjölmiðlum bréf til seðlabankastjóra þar sem mælst er til þess að bankastjórarnir biðjist lausnar, annars eigi þeir ráðherrann á fæti og lagasetningarvald Alþingis. Slíkri ríkisstjórn þarf greinilega að setja siðareglur.

Spyrja má: Gat nýr forsætisráðherra ekki valið betri gjöf til Stjórnarráðs Íslands á 105 ára afmæli þess en að færa stjórnvaldsákvarðanir út á götu? Þetta er ekki vönduð stjórnsýsla. Rökin í bréfinu til bankastjóranna, að með því sé verið að endurvekja traust á fjármálakerfinu, eru með öllu marklaus. Herra forseti. Ég minnist þess ekki að hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hafi gert athugasemdir við ákvarðanir Seðlabanka Íslands í peningamálum á meðan ég sat með henni í ríkisstjórn.

Góðir áheyrendur. Illa var staðið að myndun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Það ríkir óvissa um framgang allra mála sem hún ætlar að leggja fyrir Alþingi. Fyrstu verk ríkisstjórnarinnar eru geðþóttaákvarðanir um að bola embættismönnum úr störfum. Þetta er ný byrjun og þetta er nýtt gildismat sem ber að hafna og lofar ekki góðu. Ég efast um að nokkur trúi því að við núverandi aðstæður á Íslandi sé það þjóðinni fyrir bestu að lúta slíkri stjórn. Fyrstu skref hennar staðfesta aðeins að það er ekki nein tilviljun að vinstri stjórn hefur ekki setið hér í 18 ár og þessi stjórn komst ekki til valda nema með því að farið var á svig við þingræðisregluna. Á stjórnmálavettvangi er það ljós í myrkri að kosið verður til Alþingis 25. apríl.