136. löggjafarþing — 76. fundur, 6. feb. 2009.
fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég óskaði eftir því fyrir hádegishlé að kallað yrði eftir bæði fjármálaráðherra hæstv., Steingrími J. Sigfússyni, sem nú gengur í salinn, og viðskiptaráðherra. Ég spyr hæstv. forseta hvort hann viti hvort hæstv. viðskiptaráðherra muni verða í salnum við þessa umræðu, um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Ég veit að hæstv. forsætisráðherra er í húsinu en ég spyr hæstv. forseta um hæstv. viðskiptaráðherra.