136. löggjafarþing — 78. fundur,  10. feb. 2009.

viðbótarsamningar við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu og Króatíu.

197. mál
[14:35]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð bara að upplýsa það að ég er hér margs vísari eftir ræðu hv. formanns utanríkismálanefndar og tek undir með honum að það væri fróðlegt að fá meiri umfjöllun um þetta svæði í heiminum sem við vitum ekki nógu mikið um, sum okkar alla vega. Ég tek undir það með þingmanninum að við ættum endilega að skoða þessi mál frekar.