136. löggjafarþing — 82. fundur,  17. feb. 2009.

þingsályktunartillaga um hvalveiðar.

[14:11]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Forseti vill upplýsa varðandi fyrirspurn hv. þm. Jóns Gunnarssonar að fjallað verður um málið í þinginu með svipuðum hætti og gert hefur verið, þ.e. í samráði við þingflokksformenn og forsætisnefnd þingsins og málið mun að sjálfsögðu fá þar umfjöllun með sama hætti og önnur mál. Það eru engin áform um að tefja þetta mál umfram önnur. Ég vona að þetta svari fyrirspurninni. (Gripið fram í.)