136. löggjafarþing — 85. fundur,  20. feb. 2009.

svar við fyrirspurn.

[10:48]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Eins og fram kom í orðum hv. þm. Eyglóar Harðardóttur óskaði hún eftir að málum yrði fylgt eftir og krafist svara við fyrirspurn hv. þingmanns. Forseti hefur gengið eftir því með formlegum hætti og mun fylgja því áfram. Svör hafa borist um að þetta hafi tafist vegna stjórnarskipta en það mun verða gengið mjög fastlega eftir að þetta komi sem allra fyrst.