136. löggjafarþing — 87. fundur,  24. feb. 2009.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Um klukkan tvö í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram umræða utan dagskrár um stöðu og starfsumhverfi íslenskrar verslunar. Málshefjandi er hv. þm. Ásta Möller og til andsvara er hæstv. viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.