136. löggjafarþing — 99. fundur,  11. mars 2009.

tilhögun þingfundar.

[12:01]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag, þ.e. þar til umræðu um dagskrármálin er lokið. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Ef svo er ekki skoðast hún samþykkt.