136. löggjafarþing — 101. fundur,  12. mars 2009.

tilhögun þingfundar.

[11:06]
Horfa

Forseti (Kjartan Ólafsson):

Forseti vill tilkynna að þrátt fyrir fyrri tilkynningu forseta um atkvæðagreiðslur sem til stóð að hafa kl. hálftvö ætlar forseti að freista þess að hafa atkvæðagreiðslu um afbrigði nú svo umræður gangi eðlilega í dag. Forseti hyggst þess vegna ganga til atkvæðagreiðslu um afbrigði.