136. löggjafarþing — 104. fundur,  16. mars 2009.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2007, um breytingu á VII. viðauka og bókun 37 við EES.

373. mál
[16:43]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er á þskj. 704 nefndarálit frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 2007, um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) og bókun 37 við EES-samninginn. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2007, frá 26. október 2007, um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) og bókun 37 við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 2005. Tilskipunin fjallar um viðurkenningu á menntun til starfa sem eru lögvernduð og krefjast þess að aðilar hafi aflað sér faglegrar menntunar og hæfis áður en þeim er heimilt að hefja störf á viðkomandi sviði.

Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi en endurskoða þarf lög nr. 83/1993, um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, en þau hafa að geyma ákvæði um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hér á landi, og færa til samræmis við ákvæði hinnar nýju tilskipunar.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt. Kristinn H. Gunnarsson, Lúðvík Bergvinsson, Ragnheiður E. Árnadóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið skrifa Árni Þór Sigurðsson, formaður og framsögumaður, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Björn Bjarnason, Siv Friðleifsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir.