136. löggjafarþing — 105. fundur,  17. mars 2009.

þingmál um veiðar á hrefnu og langreyði.

[14:06]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Nú vill svo óvenjulega til að ég get tekið undir hvert einasta orð sem hv. þm. Mörður Árnason sagði hér. Það gerist ekki oft en ég fagna því að hann skuli hafa vakið athygli á þessu og beini því eindregið til forseta að taka þetta mál á dagskrá sem allra fyrst.