136. löggjafarþing — 108. fundur, 18. mars 2009.
endurskoðun samgönguáætlunar og framkvæmdir á Hellisheiði.
Virðulegi forseti. Á þessari stundu er kannski ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvar verður byrjað, á hvaða kafla, en ég hygg að innan viku eða tíu daga verði hægt að svara því. Vinna stendur yfir með mjög margt á Suðurlandsvegi, hvernig skuli fara í það og þess vegna er á þessari stundu ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvenær verður boðið út og þá hvaða kaflar. Aðalatriðið er að það verður byrjað á þessu ári.