136. löggjafarþing — 111. fundur,  23. mars 2009.

málefni aldraðra.

412. mál
[17:35]
Horfa

Frsm. fél.- og trn. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti félags- og tryggingamálanefndar um gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Hönnu S. Gunnsteinsdóttur og Bjarnheiði Gautadóttur frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu til að fara yfir málið.

Með frumvarpinu er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 431 kr. eða um 6,1% og nemi 7.534 kr. á hvern gjaldanda í stað 7.103 kr. samkvæmt gildandi lögum. Í athugasemdum sem fylgja frumvarpinu kemur fram að hækkunin sé í samræmi við verðlagsbreytingar á tímabilinu desember 2006 til desember 2007 og hækkun byggingarvísitölu á þessu tímabili.

Á fundum nefndarinnar kom meðal annars fram ábending um að leiðrétta þyrfti fjárhæð í 2. mgr. 10. gr. þar sem vísað er til tekjuviðmiðs sem notað er til að ákvarða þá sem undanþegnir eru gjaldinu. Álagningargjaldaviðmið þetta hefur hækkað samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytis og er því mikilvægt að leiðrétta viðmiðið. Auk þess telur nefndin að óeðlilegt sé að vísað sé í lagatexta til tekjuársins 2007.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við 1. gr. bætist nýr stafliður er verði b-liður, svohljóðandi:

Í stað orðanna „1.080.067 kr. á tekjuárinu 2007“ í 2. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: 1.143.362 kr. á því ári sem næst er á undan álagningarárinu.

Hæstv. forseti. Ástæða þess að hér er verið að flytja þetta frumvarp er sú að ákveðið er með lögum hvert gjald skuli vera í Framkvæmdasjóð aldraðra og það gjald er hækkað árlega með hækkunum sem hér eru til nefndar, þ.e. verðlagsbreytingum og hækkun á byggingarvísitölu á þessu tímabili. Alþingi er ekki heimilt að hafa opna heimild til vísitöluhækkana í lögum þannig að árlega ber Alþingi að leggja fram frumvarp um þessa ákveðnu upphæð samhliða afgreiðslu fjárlaga. Við afgreiðslu fjárlaga á þessu ári, í þeim atgangi sem þá var, og núna eftir áramótin láðist að afgreiða þetta mál en það er hér gert með þessum breytingum.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson og Árni Johnsen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið skrifa sú sem hér sendur og hv. þingmenn Helga Sigrún Harðardóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Atli Gíslason.

Ég tel að frumvarpið tali fyrir sig sjálft. Það var flutt af hæstv. heilbrigðisráðherra því að fyrir áramótin féll þessi málaflokkur undir heilbrigðisráðuneytið. Eftir áramótin var þetta flutt yfir til félags- og tryggingamálaráðherra og -ráðuneytis og það er hluti af þeirri skýringu hvers vegna þetta féll niður um áramótin.