136. löggjafarþing — 112. fundur,  24. mars 2009.

afgreiðsla þingmála o.fl.

[14:19]
Horfa

Kristinn H. Gunnarsson (U):

Virðulegi forseti. Ég bið forseta um upplýsingar um hvers vegna ekki er á dagskrá þingsályktunartillaga um hvalveiðar sem hér hefur verið rekið eftir að yrði tekin fyrir. Hvenær hyggst hæstv. forseti taka fyrir það mál?