136. löggjafarþing — 112. fundur,  24. mars 2009.

íslenskur ríkisborgararéttur.

402. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. allshn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt.

Allsherjarnefnd hefur fjallað um málið.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um íslenskan ríkisborgararétt sem lúta að undirbúningi og framkvæmd prófa í íslensku. Lagt er til að ráðherra geti falið Námsmatsstofnun eða öðrum sambærilegum aðila að annast undirbúning og framkvæmd prófa í íslensku og að ráðherra verði veitt heimild til að ákvarða prófgjald sem ætlað er að standa undir kostnaði við prófin og undirbúning þeirra, en ákvæði um þetta efni láðist að setja inn á sínum tíma.

Fram kom að umsækjendur um ríkisborgararétt geta þreytt prófin án þess að hafa undirbúið sig formlega, þ.e. með setu námskeiðs o.s.frv. Gert er ráð fyrir að prófgjaldið standi undir kostnaði við prófin og verði hóflegt.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Hv. þingmenn Ólöf Nordal og Árni Þór Sigurðsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Álfheiður Ingadóttir, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir og Jón Magnússon.