136. löggjafarþing — 125. fundur,  3. apr. 2009.

orð þingmanns í utandagskrárumræðu – umræða um dagskrármál – fundur í umhverfisnefnd.

[14:25]
Horfa

Forseti (Einar Már Sigurðarson):

Vegna orða hv. þingmanns vill forseti taka fram að að sjálfsögðu verða flutningsmenn látnir vita af ósk hv. þingmanns. Það er gleðilegt að nokkrir flutningsmenn eru í húsi nú þegar. Varðandi það hversu lengi fundur kemur til með að standa var það ætlun forseta að ræða það þegar þessum lið, um fundarstjórn forseta, væri lokið eins og hefð gerir ráð fyrir.