136. löggjafarþing — 131. fundur,  14. apr. 2009.

framhald þingfundar og borgarafundur.

[15:13]
Horfa

Jón Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Mér þætti líka gott að vita hvað meiningin er að halda áfram lengi, hvort ekki megi treysta því að fundi verði frestað eða slitið um miðnætti eða hvort meiningin er að halda áfram út í nóttina. Ég hefði talið að eðlilegt væri að miðað yrði við það þegar þessi sólarhringur er liðinn, hvað sem líður enska fótboltanum.