stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Ég spyr hæstv. forseta hvernig hann hyggst haga starfi þingsins á þessum fundi. Ég á mikið ósagt enn í stjórnarskipunarlögum og ætla að vita hvort meiningin sé að taka það núna á dagskrá og keyra það inn í nóttina, þá hef ég góðan tíma til að segja mína skoðun á því máli og jafnvel klára þá skoðun.
Svo eru líka önnur mál sem eru seinna á dagskránni. Getur verið að hæstv. forseti taki þau aftur upp eins og t.d. málið um listamannalaun, tekjuskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem ég hef sérstaklega mikinn áhuga á? Ég vildi gjarnan vita pínulítið meira af því að komin er nótt og menn vilja kannski — ég á að mæta á fund í fyrramálið klukkan átta, það er nefnilega byrjuð kosningabarátta. Ég vil því gjarnan fá að vita þetta.