136. löggjafarþing — 134. fundur,  17. apr. 2009.

almenn hegningarlög.

342. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta allshn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta allsherjarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum þar sem lagðar eru til breytingar á 206. gr. almennra hegningarlaga með það að markmiði að gera refsivert að kaupa vændi eða heita öðrum ávinningi fyrir vændi. Jafnframt er lagt til að gert verði refsivert að greiða fyrir vændi barns yngra en 18 ára eða heita öðrum greiðslu eða öðrum ávinningi fyrir vændi barns.

Markmiðið með frumvarpinu er, eins og þingheimi er ljóst, að gera kaup á vændi almennt refsiverð og sporna með því við sölu á kynlífi. Með þessu er ábyrgðin á viðskiptunum færð til kaupandans þar sem mikill aðstöðumunur er á kaupanda og seljanda sem er iðulega knúinn áfram af einhvers konar neyð.

Mál hliðstæðs eðlis hafa oft verið lögð fram undanfarin ár en ekki náð fram að ganga. Samþykkt þessa þingmannafrumvarps í meiri hluta allsherjarnefndar er í samræmi við þá stefnumörkun sem ríkisstjórnin hefur þegar sett fram að þessu leyti um að gera beri kaup á vændi refsiverð. Að öðru leyti skýrir málið sig sjálft og ég ætla ekki að orðlengja það í ljósi þess að nú líður að þinglokum. Málið er fullupplýst í ljósi langrar umræðu um það á fyrri þingum.

Ég vil þó vekja athygli á því að á fundum nefndarinnar kom fram að í 202. gr. almennra hegningarlaga og í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins er fjallað um það sama, þ.e. um refsinæmi þess að greiða barni undir 18 ára fyrir samræði eða önnur kynferðismök. Ákvæði frumvarpsins gengur þó lengra þar sem það nær einnig til þess þegar þriðja aðila er greitt fyrir slíkt. Því er gerð tillaga um ákveðna hreinsun og einföldun á lagaákvæðunum að því leyti að þar sem í 202. gr. er ákvæði um kynferðisbrot gegn börnum en 206. gr. er almennt ákvæði um vændi séu ákvæði frumvarpsins eðlileg viðbót við þá síðarnefndu. Því er lagt til að 4. mgr. 202. gr. falli brott þar sem hún verður óþörf við þessa breytingu.

Undir álit meiri hluta allsherjarnefndar rita auk mín hv. þingmenn Álfheiður Ingadóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Árni Þór Sigurðsson og Siv Friðleifsdóttir.