137. löggjafarþing — 2. fundur,  18. maí 2009.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:50]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana. Þeim verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í annarri og Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þm. Norðaust., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s., í annarri umferð og Ásbjörn Óttarsson, 1. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þm. Norðvest.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest.

Fyrir Borgarahreyfinguna tala í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þm. Suðvest., Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. suður, í annarri umferð og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.