137. löggjafarþing — 4. fundur,  20. maí 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

15. mál
[15:54]
Horfa

viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, máli nr. 15 á þskj. 15.

Með lagafrumvarpi þessu sem samið hefur verið í viðskiptaráðuneytinu og er endurflutt nú efnislega óbreytt er stefnt að því að einfalda reglur í lögum um hlutafélög og jafnframt í lögum um einkahlutafélög við samruna og skiptingu án þess þó að slíkt dragi úr vernd hluthafa og lánardrottna. Gert er ráð fyrir að sleppa megi skýrslugjöf utanaðkomandi aðila um samrunaáætlun ef allir hluthafar í samrunafélögunum samþykkja. Er talið að ákvæðin dragi helst úr kostnaði hjá litlum félögum, t.d. við samruna innan samstæðu. Má þá nefna tvö systurfélög sem einn og sami hluthafi á. Slíkur samruni getur alloft átt sér stað. Ákvæðin eiga rætur að rekja til áætlunar Evrópusambandsins um að draga úr stjórnsýslubyrðum. Tekið hefur verið tillit til breytinga við meðferð málsins á síðasta þingi, m.a. vegna umsagna.

Um er að ræða innleiðingu á ákvæðum varðandi hlutafélög í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/63/EB frá 13. nóvember 2007 um breytingu á tilskipunum ráðsins 78/855/EBE og 82/891/EBE að því er varðar kröfu um skýrslu óháðs sérfræðings í tengslum við samruna eða skiptingu hlutafélaga. Tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2008 frá 25. apríl 2008 um breytingu á XXII. viðauka (félagaréttur) við EES-samninginn frá 2. maí 1992.

Tilskipunin tekur til hlutafélaga en gert er ráð fyrir samsvarandi breytingum til einföldunar í lögum um einkahlutafélög, enda ákvæði um samruna og skiptingu svipuð í hvorum tveggja lögunum. Breytingarnar á almennum ákvæðum um samruna og skiptingu leiða síðan til þess að gera þarf samtímis smávægilegar breytingar á ákvæðum framangreindra laga um millilandasamruna og millilandaskiptingu þar sem reglur eru einfaldari fyrir.

Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Að öðru leyti vísa ég til athugasemda með frumvarpi þessu.

Virðulegi forseti. Ég vænti þess að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til viðskiptanefndar og verði afgreitt hið fyrsta.