137. löggjafarþing — 6. fundur,  26. maí 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[15:15]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi á þskj. 34, 34. mál, en þar er um að ræða breytingar á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Viðamesta breytingin lýtur annars vegar að skipan frístundaveiða og hins vegar að skipan frjálsra handfæraveiða nú í sumar, sem takmarkast einkum af þeim aflaheimildum sem sérstaklega verður ráðstafað til veiðanna á yfirstandandi fiskveiðiári. Þá er gert ráð fyrir að leyfilegum heildarafla í karfa verði skipt upp í veiðar úr gullkarfa og djúpkarfa. Að lokum er gert ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fái heimild til að gefa út leyfi til takmarkaðra veiða í fræðsluskyni.

Frístundaveiðar við Ísland eru vaxandi þáttur í ferðaþjónustu hér við land en veiðar á frístundafiskibátum eins og þekkjast í dag hófust að marki á Vestfjörðum árið 2006. Þessar veiðar hafa bæði verðið stundaðar á venjulegum fiskibátum, sem í annan tíma stunda veiðar í atvinnuskyni, og sérstökum frístundabátum, sem hafa verið smíðaðir sérstaklega í þessum tilgangi.

Fyrir liggja allnákvæmar upplýsingar um afla þessara frístundafiskveiðibáta enda hafa þeir bátar verið með leyfi til veiða í atvinnuskyni og þurfa að uppfylla þau skilyrði sem sett eru í lögum og reglum um stjórn fiskveiða, þar á meðal um vigtun og skráningu sjávarafla. Heildarveiði þessara báta var um 200 tonn á árinu 2007 og var þorskafli þar af um 180 tonn. Á árinu 2008 var heildaraflinn um 250 tonn og þorskafli þar af um 220 tonn. Er fjöldi skráðra frístundabáta nú 43. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda annarra báta sem selja ferðir í sjóstangaveiði. Nokkrir aðilar sem selja skoðunarferðir á sjó bjóða einnig upp á sjóstangaveiði samhliða skoðunarferðunum, annaðhvort sem hluta afþreyingar í skoðunarferðum eða sem sérstakar veiðiferðir á sjóstöng. En líkt og með frístundafiskveiðarnar hefur slík ferðaþjónusta verið vaxandi undanfarin ár.

Þann 20. febrúar 2008 skipaði þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra starfshóp sem samkvæmt skipunarbréfi hafði það hlutverk að fara yfir starfsumhverfi frístundabáta og greina hvort og með hvaða hætti unnt væri að taka tillit til sérstöðu útgerðar frístundaveiðibáta með hliðsjón af gildandi ákvæðum fiskveiðistjórnarlaga um nýtingu og verndun nytjastofna sjávar. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni til ráðherra í janúar 2009. Við samningu þessa frumvarps var tekið mið af niðurstöðum og tillögum starfshópsins. Í frumvarpinu eru sett skilyrði fyrir starfseminni sem er ætlað að taka tillit til nokkurrar sérstöðu þessarar starfsemi og fella hana að því fiskveiðistjórnarkerfi sem hér er beitt.

Þannig er gert ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar sem hyggjast bjóða viðskiptavinum sínum upp á möguleika til að stunda veiðar í sjó hér við land þurfi að sækja um leyfi til Fiskistofu fyrir hvern bát sem þeir ætla að nota í því skyni. Gildir það hvort sem ferðaþjónustuaðilar stunda eingöngu sjóstangaveiðar eða veiðarnar eru einungis hluti þeirrar afþreyingar sem boðið er upp á. Skilyrði fyrir útgáfu þessa leyfis er að fyrir liggi leyfi Ferðamálastofu sem hún gefur út með stoð í 8. gr. laga nr. 73, 24. maí 2005, um skipan ferðamála. Er útgáfa leyfis Fiskistofu háð framangreindu skilyrði til þess að ferðamálayfirvöld geti betur tryggt að öll umgjörð um þessa starfsemi sé með þeim hætti að fylgt sé fullnægjandi gæða- og öryggiskröfum auk þess að eftirlit verði með þeim þáttum sem Ferðamálastofa telur ástæðu til.

Gerður er greinarmunur á tvenns konar leyfum sem gefin eru út til báta sem gera út á frístundaveiðar með ferðamenn. Annars vegar er um að ræða leyfi til handa þeim hópi sem stundar blandaða starfsemi þar sem sjóstangaveiði er ekki meginþátturinn í þeirri þjónustu sem boðið er upp á. Eru aðilum í þessum hópi heimilaðar mjög takmarkaðar veiðar með takmarkaðan fjölda sjóstanga án þess að leggja þurfi til aflaheimildir. Hins vegar er um að ræða leyfi til handa þeim aðilum sem markvisst gera út á sjóstangaveiðar í þeirri þjónustu sem boðið er upp á. Takmarkast afli þessara báta af aflamarki eða krókaaflamarki viðkomandi báta, þ.e. þeir þurfa að hafa aflaheimildir fyrir öllum afla sem veiddur er.

Þannig er gerður greinarmunur á aðilum í ferðaþjónustu sem annars vegar markvisst stunda fiskveiðar í þessum tilgangi og hins vegar þeim aðilum sem bjóða upp á blandaða starfsemi þar sem sjóstangaveiðar eru óverulegar þáttur í þeirri afþreyingu sem í boði er.

Við veitingu frístundaleyfa koma einungis til greina þau skip sem hafa haffærisskírteini og skrásett eru á skipaskrá Siglingastofnunar Íslands og uppfylla öll skilyrði til að stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Í apríl sl. kynnti þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, þau áform að fresta úthlutun byggðakvóta nú á þessu fiskveiðiári til að skapa svigrúm fyrir breytta stefnu til styrkingar og örvunar atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum. Boðaða markmiðið var nýting sjávarauðlindarinnar á nýjum grunni þar sem mönnum verði gert mögulegt að stunda frjálsar veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Jafnframt yrði komið á nýjum flokki veiða, svokölluðum „strandveiðum“, þar sem heimilaðar væru frjálsar handfæraveiðar við ströndina. Núverandi stjórn fiskveiða er gagnrýnd fyrir að erfitt sé fyrir nýja aðila að hefja veiðar í atvinnuskyni. Með strandveiðum er opnað á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki þurfa að vera handhafar veiðiheimilda. Þannig er til að mynda ungu og áhugasömu fólki auðveldað að afla sér reynslu og þekkingar um leið og sveigjanleiki er aukinn.

Síðan þá hefur verið unnið að nánari útfærslu þessara hugmynda og hefur í þeirri vinnu verið tekið til tillit til ýmissa sjónarmiða sem fram hafa komið.

Með frjálsum handfæraveiðum eða strandveiðum yfir sumarmánuðina er opnað fyrir handfæraveiðar allra þeirra báta sem uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til fiskiskipa sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni. Með veiðunum er þannig m.a. opnað á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki eru handhafar aflamarks eða krókaaflamarks. Núverandi handhöfum aflamarks eða krókaaflamarks stendur þó jafnframt til boða að stunda frjálsar handfæraveiðar að sömu skilyrðum uppfylltum.

Strandveiðarnar takmarkast einkum af þeim aflaheimildum sem sérstaklega er ráðstafað til veiðanna eða alls 3.955 lestum af óslægðum þorski auk meðafla í ýsu upp á 3% og ufsa upp á 15%. Er landinu skipt í fjögur landsvæði og er aflaheimildum ráðstafað hlutfallslega til landsvæðanna á grundvelli skiptingar byggðakvóta til þeirra byggðarlaga sem falla innan viðkomandi landsvæða. Eru 55% þess magns af óslægðum þorski sem ráðstafað hafði verið til byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári ráðstafað til strandveiðanna. Auk þess er ráðstafað til strandveiða 2.500 tonnum af þorski umfram þær aflaheimildir sem úthlutað hefur verið á fiskveiðiárinu 2008/2009 á grundvelli laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Skiptist þessi viðbótarúthlutun jafnt á landsvæðin fjögur. Önnur helstu skilyrði sem sett eru fyrir þessum veiðum eru þau að óheimilt er að stunda veiðar á laugardögum og sunnudögum, hámarkstími veiðiferðar er 12 klst., ekki er heimilt að hafa fleiri en tvær handfærarúllur um borð sé einn maður í áhöfn, annars mest fjórar, og að hámarki má draga 800 kg af óslægðum þorski í hverri veiðiferð á hverjum degi. Þá skal landa öllum afla innan svæðisins og skal það gert í samræmi við gildandi reglur um vigtun og skráningu sjávarafla.

Þar sem um nýjan flokk veiða er að ræða eru reglur og skilyrði veiðanna sett til eins árs. Á grunni þeirrar reynslu og lærdóms sem draga má af fyrirhuguðum strandveiðum á yfirstandandi fiskveiðiári verður reynslan af þeim metin. Verður í því sambandi leitast við að nýta þá þekkingu og reynslu sem til staðar er í hinum dreifðu sjávarbyggðum landsins. Þá verður tekið til sérstakrar athugunar með hvaða hætti leyfin hafa dreifst en vilji stendur til þess að dreifingin sé sem jöfnust, þ.e. að leyfin safnist ekki á hendur fárra aðila. Á þessum grunni verður fyrirkomulag og skipan veiðanna endurskoðað fyrir næsta fiskveiðiár.

Að lokum er gert ráð fyrir því að leyfilegum heildarafla í karfa verði skipt upp í veiðar á gullkarfa og djúpkarfa og þá verði í lögunum heimild til þess að leyfa takmarkaðar veiðar í fræðsluskyni.

Allt frá upphafi kvótakerfisins 1984 hefur úthlutun aflaheimilda í karfa tekið til tveggja tegunda karfa, þ.e. djúpkarfa og gullkarfa. Hafrannsóknastofnunin hefur í nokkur ár lagt til í ráðgjöf sinni að aflamarki í gullkarfa og djúpkarfa verði úthlutað aðskildu. Þann 14. nóvember 2008 skipaði þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra starfshóp sem ætlað var að gera tillögur um reglur við framkvæmd skiptingar á heildaraflamarki fyrir gullkarfa og djúpkarfa. Var hópurinn skipaður fulltrúum Landssambands íslenskra útvegsmanna, Hafrannsóknastofnunar og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Lagt er til að hvert skip fái sömu aflahlutdeild í gullkarfa og djúpkarfa og það hefði í karfa. Yrði þannig aflahlutdeild í gullkarfa og djúpkarfa hin sama. Er hér lagt til að tillögu nefndarinnar verði fylgt en hópurinn skilaði tillögum sínum til ráðherra með bréfi, dagsettu 12. desember 2008.

Ekki er til staðar sérstök heimild til handa ráðherra að leyfa sérstaklega veiðar sem fara fram í fræðsluskyni, t.d. á skólabátum, en umsóknir um slíkt berast ráðuneytinu stundum og koma þær einkum frá fræðsluyfirvöldum. Hér yrði um mjög óverulegar veiðar að ræða og fyrst og fremst í því skyni að kynna fyrir t.d. nemendum í skólum veiðar, notkun veiðarfæra og lífríki hafsins við Ísland. Er því gert ráð fyrir í frumvarpinu að heimilt verði að veita þessa undanþágu í takmörkuðum mæli enda verði aflinn ekki fénýttur.

Hæstv. forseti. Ég tel mikilvægt að þetta mál sem ég hef hér mælt fyrir fái sem hraðastan framgang og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og umfjöllunar hjá hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.