137. löggjafarþing — 8. fundur,  28. maí 2009.

aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

38. mál
[11:53]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Forseti getur upplýst að æðimargir ráðherrar eru í húsi þótt þeir sitji ekki á ráðherrabekkjum. Hæstv. umhverfisráðherra þurfti að hverfa á braut til fundar í umhverfisráðuneytinu en kemur til baka að loknum þeim fundi. Hæstv. forsætisráðherra, hæstv. fjármálaráðherra, hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hæstv. viðskiptaráðherra og hæstv. dómsmálaráðherra eru í húsi.