137. löggjafarþing — 14. fundur,  4. júní 2009.

tilkynning um dagskrá.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um kl. 11 í dag, að loknum liðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um skýrslur nefnda um háskólamál. Málshefjandi er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.