137. löggjafarþing — 16. fundur,  8. júní 2009.

rannsókn sérstaks saksóknara á bankahruninu.

[15:22]
Horfa

dómsmálaráðherra (Ragna Árnadóttir):

Ég vil þakka aftur fyrir þessa fyrirspurn og ég tel að þingið eigi að veita aðhald með fyrirspurnum af þessu tagi. Það er ekkert útilokað að það verði flutt hér frumvarp þar sem farið verður fram á auknar heimildir eða þá að embættið verði styrkt með einhverjum hætti.