137. löggjafarþing — 16. fundur,  8. júní 2009.

vátryggingastarfsemi.

53. mál
[17:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en verið mjög sáttur við þetta svar. Annað væri hreint og klárt vanþakklæti.

Virðulegi forseti. Úr því að ég á eitt andsvar eftir og ég fæ svona góð svör frá hæstv. ráðherra ætla ég að nota tækifærið og ítreka hina spurningu mína sem snýr að því hvað það er helst sem ráðherra telur að hafi verið ástæðan, ef hann getur upplýst það, fyrir því að málið náði ekki í gegn í þau skipti sem talað hefur verið fyrir því.