137. löggjafarþing — 18. fundur,  11. júní 2009.

tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 11 í dag, að loknum dagskrárliðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um atvinnumál og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Málshefjandi er hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir. Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.