137. löggjafarþing — 21. fundur,  16. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[18:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta sjútv.- og landbn. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Eftir að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingu, hafði verið vísað til 3. umr. á þingfundi í gær ákvað sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd að taka málið til frekari umfjöllunar í dag. Nefndin fékk á sinn fund Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann ráðherra, Steinar I. Matthíasson skrifstofustjóra, Hrefnu Gísladóttur og Kristján Frey Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, Dagmar Sigurðardóttur lögfræðing og Ásgrím L. Ásgrímsson frá Landhelgisgæslu Íslands og Arthúr Bogason frá Landssambandi smábátaeigenda.

Umsagnir bárust frá Landhelgisgæslu Íslands og Samtökum eigenda sjávarjarða.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við ákvæði til bráðabirgða.

a. Í stað orðanna „12 klukkustundir“ í 2. tölulið 4. mgr. komi: 14 klukkustundir.

b. 5. tölul. 4. mgr. orðist svo: Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 800 kg af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð.

Undir þetta álit skrifa fulltrúar meiri hlutans, Ólína Þorvarðardóttir varaformaður, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Ásmundur Einar Daðason, Björn Valur Gíslason, Róbert Marshall og Helgi Hjörvar.