137. löggjafarþing — 22. fundur,  18. júní 2009.

heilbrigðisstarfsmenn.

113. mál
[23:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um heilbrigðisstarfsmenn.

Löggiltar heilbrigðisstéttir eru nú 33 talsins. Sérlög gilda um 14 heilbrigðisstéttir en 19 stéttir hafa verið löggiltar með reglugerðum með stoð í lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Vinna við heildarfrumvarp um heilbrigðisstéttir hófst á vegum ráðuneytisins fyrir meira en tíu árum. Drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisstarfsmenn hafa þrisvar verið send til umsagnar, síðast í desember 2008, en þá voru drög að frumvarpi send til landlæknis, allra fagfélaga löggiltra heilbrigðisstétta, kennslustofnana og stærstu heilbrigðisstofnana. Umsagnir bárust frá 25 aðilum og voru þær flestar jákvæðar. Farið hefur verið yfir frumvarpið með tilliti til umsagna sem bárust í janúar síðastliðnum og gerðar á því nokkrar breytingar.

Gildandi laga- og reglugerðaákvæði um heilbrigðisstéttir eru að ýmsu leyti úrelt og gætir talsverðs ósamræmis, til dæmis varðandi það hvaða heilbrigðisstéttir geta starfað sjálfstætt og hverjar starfa á ábyrgð annarrar heilbrigðisstéttar, hvaða heilbrigðisstéttir mega hafa aðstoðarmenn og hverjar ekki og hvaða heilbrigðisstéttir þurfa að halda skýrslur um störf sín og hverjar ekki.

Megintilgangur frumvarpsins er að samræma og einfalda gildandi ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðisstarfsmanna. Í frumvarpinu er leitast við að gera ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn markvissari og hnitmiðaðri en áður, felldar eru brott ónauðsynlegar takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta og þau færð til nútímahorfs þannig að heilbrigðisþjónustan og störf og starfssvið heilbrigðisstétta geti þróast með eðlilegum hætti innan ramma löggjafar.

Frumvarp þetta byggir að stofni til á ákvæðum læknalaga, nr. 53/1988, enda er tilvísun til læknalaga í flestum lögum og reglugerðum um heilbrigðisstéttir. Ýmis ákvæði læknalaga gilda því almennt um heilbrigðisstarfsmenn og má því segja að þau séu að vissu marki grundvallarlög um heilbrigðisstéttir.

Með setningu laga um landlækni, nr. 41/2007, var stigið skref í átt til samræmingar ákvæða um eftirlit landlæknis með heilbrigðisstarfsmönnum með því að taka upp í þau lög ákvæði um veitingu áminninga, sviptingu starfsleyfis og endurveitingu starfsleyfis heilbrigðisstarfsmanna.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að ráðherra geti með reglugerðum kveðið á um ýmis atriði sem eru þess eðlis að betur fer á að þau séu ákveðin í stjórnvaldsfyrirmælum. Má þar meðal annars nefna kröfur um nám og námsskilyrði og eftir atvikum starfsþjálfun, ákvæði um afmörkun starfssviðs og fleira. Við undirbúning slíkra reglugerða er gert ráð fyrir að haft verði samráð við aðila eins og landlækni, fagfélög, kennslustofnanir og eftir atvikum aðra sem málið kann að varða.

Við undirbúning frumvarpsins hefur verið höfð hliðsjón af norskum lögum um heilbrigðisstéttir frá árinu 1999, en þau lög taka til allra heilbrigðisstétta, þar á meðal lækna og hjúkrunarfræðinga.

Meðal helstu breytinga og nýmæla sem felast í frumvarpinu eru í fyrsta lagi að ein samræmd rammalög um heilbrigðisstarfsmenn koma í stað fjórtán laga um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að heimild til að löggilda nýjar heilbrigðisstéttir með reglugerð falli brott.

Í þriðja lagi er gert ráð fyrir að starfssvið heilbrigðisstétta verði ákveðið á grundvelli þekkingar og hæfni með tilliti til hagsmuna sjúklinga og úrelt ákvæði um takmarkanir á starfsréttindum felld brott.

Í fjórða lagi er kveðið á um það í frumvarpinu að heilbrigðisstarfsmaður skuli virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns þegar við á.

Í fimmta lagi er það undirstrikað í frumvarpinu að óheimilt sé að starfa undir áhrifum áfengis eða vímuefna og heilbrigðisstofnunum heimilað að setja reglur um bann við notkun áfengis og vímuefna í tiltekinn tíma áður en vinna hefst.

Í sjötta lagi er kveðið er á um að heilbrigðisstarfsmenn skuli gæta þess að sjúklingar, sjúkratryggingar eða aðrir verði ekki fyrir óþarfaútgjöldum eða óþægindum.

Í sjöunda lagi er skylda heilbrigðisstarfsmanna til að færa sjúkraskrá samkvæmt lögum um sjúkraskrár áréttuð.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins og helstu breytingum frá núgildandi ákvæðum þeirra fjórtán laga sem nú gilda um heilbrigðisstéttir. Ég legg áherslu á að frumvarpið felur ekki í sér verulegar efnisbreytingar heldur fyrst og fremst nauðsynlega samræmingu og einföldun þess flókna og að mörgu leyti úrelta regluverks sem nú gildir um heilbrigðisstéttir, en eins og komið hefur fram gilda nú fjórtán lög og milli 30 og 40 reglugerðir um heilbrigðisstéttir.

Frumvarpið hefur, eins og komið hefur fram, verið mjög lengi í vinnslu og er því löngu tímabært að ráðist verði í fyrrgreindar endurbætur á löggjöf um heilbrigðisstarfsmenn.

Ég leyfi mér því að leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. heilbrigðisnefndar og til 2. umr.