137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

Icesave -- endurskoðun raforkulaga -- greiðsluaðlögun -- vinnubrögð á Alþingi o.fl.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að þar sem fimm hv. þingmenn hafa beðið um orðið undir dagskrárliðnum Störf þingsins mun forseti haga umræðunni þannig að hann gefur hv. þingmanni orðið og síðan þeim sem hann vill eiga orðastað við og svo koll af kolli.