137. löggjafarþing — 29. fundur,  29. júní 2009.

fundarstjórn.

[15:38]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að þessi liður hefur verið til umræðu á fundum þingflokksformanna. Gildandi lög um þingsköp gera ráð fyrir hálfri klukkustund tvisvar í viku, sem er mun lengri tími en hefur verið, en auðvitað er hægt að endurskoða slík lög og verður það gert í tímans rás.