137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[15:37]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil svara báðum þessum andsvörum sem hér hafa verið borin fram og þakka góð orð. Ég ætla að láta mína afstöðu ráðast af framvindu málsins í þingi. Ég á mér þá ósk heitasta að okkur tækist að sameinast um lausn og niðurstöðu, okkur tækist það öllum, þinginu öllu.