137. löggjafarþing — 33. fundur,  2. júlí 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[21:40]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Forseti vill upplýsa hv. þingmenn um það að í umræðu á Alþingi Íslendinga í dag hafa fulltrúar allra flokka tekið til máls. Á fundi forseta með formönnum þingflokka fyrr í dag var gert samkomulag um fyrirkomulag umræðna, að umræða færi hér fram til klukkan tíu í kvöld og héldi síðan áfram í fyrramálið.