137. löggjafarþing — 38. fundur, 10. júlí 2009.
breytingartillaga og umræða um ESB.
Frú forseti. Það er með ólíkindum að horfa upp á þá kúgun sem hér á sér stað. Sagt er að við eigum að kjósa eftir samvisku okkar um ESB, allir, líka þeir sem eru í stjórn, líka VG. Ég styð Ásmund Einar Daðason 100% í því að koma fram og segja sannleikann því að við eigum að segja sannleikann hér inni.