137. löggjafarþing — 52. fundur,  17. ág. 2009.

tilkynning um skipan starfshóps um Evrópumál.

[15:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá formanni utanríkismálanefndar dagsett 23. júlí sl. þar sem segir að utanríkismálanefnd Alþingis hafi skipað sérstakan starfshóp um Evrópumál í samræmi við nefndarálit meiri hluta nefndarinnar um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Starfshópnum, sem skipaður er einum fulltrúa hvers stjórnmálaflokks, er ætlað að funda reglubundið með utanríkisráðherra og samninganefnd Íslands auk þess að sitja í samráðshópi ríkisstjórnarinnar og hagsmunaaðila.

Eftirfarandi þingmenn úr utanríkismálanefnd voru skipaðir í starfshópinn:

Formaður: Árni Þór Sigurðsson. Til vara: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.

Birgitta Jónsdóttir. Til vara: Margrét Tryggvadóttir.

Bjarni Benediktsson. Til vara: Þorgerður K. Gunnarsdóttir.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Til vara: Gunnar Bragi Sveinsson.

Þórunn Sveinbjarnardóttir. Til vara: Valgerður Bjarnadóttir.