137. löggjafarþing — 53. fundur,  17. ág. 2009.

laun forseta Íslands.

168. mál
[15:59]
Horfa

Frsm. efh.- og skattn. (Magnús Orri Schram) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrir ábendinguna. Við undirbúning málsins í efnahags- og skattanefnd taldi ég að við hefðum skoðað alla þá þræði sem vert væri að skoða áður en við gætum lagt fram þetta frumvarp. En ég tek undir ábendinguna og hvet efnahags- og skattanefnd til þess að taka málefnalega afstöðu til hennar og skoða hana.