137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[10:43]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Undir ræðu félaga míns og vinar, hv. þm. Péturs H. Blöndals, leið mér eins og ég væri í spurningakeppninni Gettu betur. Svör mín við þessu eru eftirfarandi: Björgvin G. Sigurðsson var viðskiptaráðherra og Jón Sigurðsson held ég að hafi verið stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. (Gripið fram í: Tvö stig.)