137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[12:32]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel að það beri að leggja þann skilning í þetta sem ég rakti hér áðan. Ef menn hins vegar telja að hér sé eitthvað óljóst eða það þurfi að skýra þetta frekar er þetta eitt af þeim atriðum sem gætu komið til umfjöllunar í fjárlaganefnd á milli 2. og 3. umr. Ég útiloka ekkert í þeim efnum en legg áherslu á að mér finnst að um það þurfi þá að verða sama breiða samstaða og er um tillögurnar sem hér liggja fyrir.