ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, hún sagði í ræðu sinni að hún teldi þessa fyrirvara ekki fela í sér gagntilboð við upprunalega samninginn þar sem við gætum borgað ef efnahagsþróunin yrði hagstæð. Ég vona að ég hafi rétt eftir þingmanninum. Mig langar til að biðja þingmanninn aðeins að hnykkja á þessu. Hvernig getur þingmaðurinn haldið því fram að þetta sé sami samningurinn þegar fyrirvararnir kollvarpa honum í öllum aðalatriðum? Það er samið um ákveðnar greiðslur á ákveðnu árabili með ákveðinni vaxtaprósentu og síðan er núna búið að setja inn í þá fyrirvara að það gæti farið svo að ef efnahagsþróun er þannig að við mundum lítið sem ekkert borga og að ríkisábyrgðin félli niður eftir árið 2024 og þar með væntanlega eftirstöðvarnar. (Forseti hringir.) Hvernig getur þingmaðurinn haldið því fram að þetta sé ekki gagntilboð við fyrirliggjandi samning?