137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[11:48]
Horfa

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ítreka það að út frá þeim forsendum og yfirlestri og lögfræðilegri hugsun minni þá deili ég ekki áhyggjum eða skoðunum hv. þingmanns. Það leggur hv. þingmaður út þannig að svarið sé einkennilegt. Mér virðist sem öll svör sem ekki samræmast skoðunum hv. þingmanns séu það. (VigH: Afskaplega var þetta málefnalegt.)