137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[17:21]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég og hv. þingmaður erum einu sinni sem oftar sammála, en getur hv. þingmaður tekið undir það með mér að víðtæk sátt og samstaða þurfi að byggjast á niðurstöðu sem þjóðin getur verið sátt við til framtíðar?