137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[20:54]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svör hennar. Þau eru einlæg og í takti við það sem hún sagði í seinni hluta ræðu sinnar og ég tek undir með henni þegar sagt er að vonandi tekst þingheimi og Alþingi Íslendinga að afgreiða þetta mál þannig að það verði íslensk þjóð sem geti staðið upprétt eftir á en ekki beygð í duftið.