ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka svörin. Ég vil engu að síður benda á að í bókun minni kemur einmitt fram að það var enginn sem tók undir þessa beiðni mína. Ég óskaði eftir því að um greidd yrðu atkvæði og lagði svo fram bókun um að meiri hlutinn allur hefði hafnað beiðni minni um að fá Stefán Má Stefánsson lagaprófessor, sem er kannski sá aðili sem á síst skilið að vera hunsaður á þennan hátt.
Nú er það þannig að meiri hluti á Alþingi ætlar að samþykkja samninga sem brjóta í rauninni gegn öllum þeim réttindum sem við Íslendingar eigum sem fullvalda þjóð, þar á meðal sjálfstæðið. Við eigum rétt sem sjálfstæð þjóð að láta reyna á ágreiningsmál fyrir hlutlausum dómstólum. Við eigum líka rétt á því að við séum ekki (Forseti hringir.) fótumtroðin. Mig langar til þess að spyrja þingmanninn: Fer þetta ekki gegn meginsjónarmiðum hans (Forseti hringir.) sem alþingismanns?