ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Varðandi þá breytingartillögu sem hér liggur fyrir er það hárrétt sem fram kom hjá hv. þm. Pétri Blöndal áðan varðandi a-liðinn, um gildistökuna, hún er mjög afdráttarlaus í breytingartillögum meiri hlutans. Hins vegar má halda því fram varðandi b-lið þessarar tillögu sem lýtur að vaxtagreiðslum, að við tilteknar aðstæður skipti ekki nokkru einasta máli hverjar vaxtagreiðslur af þeim skuldbindingum kunna að verða sem af þessu máli leiða. Það er einfaldlega vegna þess að virkni hinna efnahagslegu fyrirvara sem settir hafa verið í breytingartillögu meiri hlutans skuldbinda viðsemjendur og lánveitendur til þess að innheimta ekki hærri kröfur en tiltekna krónutöluupphæð á hverju ári.
Að auki má nefna að það er beinlínis gert ráð fyrir því að fara inn í samningana sjálfa og ef við ætluðum okkur þá leið væru miklu stærri atriði sem ég vildi vinna að í þeim efnum. Nægir í því sambandi að nefna skaðleysið sem Bretum er tryggt þó að ekki væri nema í 8. gr. viðkomandi lánasamnings. Ég greiði þessari tillögu ekki atkvæði mitt.