138. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2009.

tilkynning um þingflokk.

[16:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett í dag, frá þingmönnunum Birgittu Jónsdóttur, Margréti Tryggvadóttur og Þór Saari:

„Það tilkynnist með þessu bréfi að við undirrituð skipum nú þingflokk Hreyfingarinnar. Þingflokkurinn er hluti nýrra stjórnmálasamtaka sem voru stofnuð í september sl.“