138. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2009.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 73. gr. þingskapa, verður flutt mánudagskvöldið 5. október og hefst umræðan kl. 7.50 síðdegis, tíu mínútum fyrir átta. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verði þrjár, 12 mín., 6 mín. og 5 mín., en forsætisráðherra hefur 20 mín. til framsögu. Þingmaður utan flokka hefur 6 mín. Umræðunni lýkur um kl. 10. Afrit ræðunnar verður sett í hólf þingmanna tveimur sólarhringum fyrir fund, þ.e. á laugardaginn.