138. löggjafarþing — 6. fundur,  13. okt. 2009.

endurheimtur á innstæðum Icesave-reikninganna.

[14:01]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svarið. Það er gott að vita að framganga ríkisstjórnarinnar í þessu máli er vaskleg. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til að halda þessu starfi áfram og leitast við ef möguleiki er á að upplýsa bæði þingheim og almenning með eins reglulegu millibili og kostur er hvað er í gangi í þessum málum. Þetta skiptir mjög miklu í því ferli sem fram undan er að það grói um heilt á Íslandi eftir allt þetta hrun og allar upplýsingar um þessi mál eru vel þegnar örugglega af almenningi.