138. löggjafarþing — 7. fundur,  14. okt. 2009.

tilkynning um rannsóknarnefnd Alþingis.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Áður en gengið verður til dagskrár vill forseti gera Alþingi stuttlega grein fyrir stöðu rannsóknarinnar á hruni íslensku bankanna, sem efnt var til með skipun rannsóknarnefndar Alþingis. Forsætisnefnd og formenn þingflokkanna áttu fund með rannsóknarnefndinni í morgun. Fram kom að gagnaöflun hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu. Nefndin hefur enn undir höndum upplýsingar sem þarfnast frekari úrvinnslu. Því er einsýnt að ekki verður unnt að láta Alþingi í té fullburða skýrslu um niðurstöðu rannsóknarinnar 1. nóvember eins og stefnt hefur verið að og segir í lögunum. Er við það miðað að skýrslan komi fram eigi síðar en 1. febrúar.

Í þessu ljósi má Alþingi vænta þess að á næstunni verði lagt fram frumvarp til breytinga á lögum nr. 142/2008, sem gilda um störf rannsóknarnefndarinnar þar sem skilafresturinn verður framlengdur. Að auki er áætlað að bæta við lögin ákvæði sem fjalla um frágang, varðveislu og aðgang að þeim viðamiklu gagnagrunnum sem orðið hafa til í störfum nefndarinnar, svo og um önnur lagatæknileg atriði.

Jafnframt vill forseti upplýsa að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefur verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða er um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram, áður en skýrslan verður gerð opinber. Því má vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.