138. löggjafarþing — 8. fundur,  15. okt. 2009.

orð forsætisráðherra um skattamál.

[11:09]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ummæli hæstv. forsætisráðherra staðfesta orð mín. Því ítreka ég beiðni mína til hæstv. forseta um að fá hið fyrsta umræðu um tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins hér í þingsal. (Gripið fram í: Fjárlagafrumvarpið …) og óska ég eftir því að hæstv. forseti beiti sér fyrir því hið fyrsta.