138. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2009.

tilkynning um embættismenn fastanefnda.

[13:31]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Borist hefur eftirfarandi tilkynning um breytingu á skipan embættismanna fastanefnda: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var kjörin varaformaður umhverfisnefndar á fundi nefndarinnar 14. október sl. Þá var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kjörin varaformaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs á fundi deildarinnar í gær, 19. október, og kjörin formaður félags- og tryggingamálanefndar á fundi nefndarinnar í morgun, 20. október. Lilja Mósesdóttir var kjörin formaður viðskiptanefndar á fundi 14. október sl.