138. löggjafarþing — 13. fundur,  22. okt. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:23]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er dapurlegt að verða var við það skilningsleysi sem hæstvirtir ráðherrar, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra, hafa á stöðu Landsbankans. Með lögum frá Alþingi var innstæðan fryst í krónum 22. apríl — í krónum. Vextir og gengishagnaður eru eftirstæðar kröfur og ekki forgangskröfur. Það þýðir það að Landsbankinn, sem á mikið af eignum í erlendri mynt, hagnast og hagnast á gengismun og mun bráðum geta borgað 110%. Innlánstryggingarsjóður á þessa forgangskröfu í krónutölu en hann skuldar í mynt. Hann skuldar frá 22. apríl 40 milljarða meira vegna gengisfalls og hann borgar á hverjum degi 100 milljónir í vexti. Það vex og vex hjá innlánstryggingarsjóði. Og hver skyldi borga það? Ríkissjóður. Ég krefst þess að ráðherrar sem standa í þessu máli skilji þessa hluti.